Um mig
Ég hanna og þróa vörumiðaðar veflausnir sem takast á við vandamál notenda á skalanlegann og viðhaldsvænan hátt. Ég starfa frá enda til enda, með framenda, bakenda og gagnagrunn, með skýra áherslu á notagildi og aðgengi kerfa og langtímaendingu kerfa. Mínar áherslur eru að skila frá mér lausnum sem nýtast bæði notendum og teymum, sem er hægt að þróa áfram, án þess að mynda tæknisuld.

Starfsreynsla
Meðstofnandi Slóða, opins hugbúnaðar sem styður leiðbeinendur innan skátahreyfingarinnar á Íslandi við dagskrárgerð og viðburðaskipulagningu. Leiði þróun og hönnun framenda í Next.js með áherslu á viðmót og notendaupplifun. Stýri einnig vinnuhópum um þróun, prófanir og dagskrárgerð.
- Next.js
- TypeScript
- Node.js
- PostgreSQL
- Figma
- Docker
- Cloudflare
Þróun og hönnun á HR Monitor, SaaS-kerfi sem styður við mannauðsstjórnun með áherslu á að bæta starfsánægju og vinnustaðamenningu. Ég vann bæði að bak- og framendaþróun með Angular, ASP.NET Core og PostgreSQL og var jafnframt hluti af þjónustuveri þar sem ég veitti sérsniðinn stuðning viðskiptavinum í tengslum við mælingar og gagnagreiningu.
- Angular
- ASP.NET Core
- PostgreSQL
- TypeScript
- C#
- Figma
Vefhönnuður og forritari
Sjálfstætt starfandi
ágúst 2023 - maí 2024
Hannaði og setti upp veflausnir fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Ég vann með WordPress, PHP-einingar og JavaScript forritun og þróaði sérsniðnar lausnir með Next.js, Vue.js og React Native. Auk þess sinnti ég bæði hönnun og tæknilegri innleiðingu lausna.
- WordPress
- PHP
- JavaScript
- Next.js
- Vue.js
- React Native
Starfsnemi í hugbúnaðarþróun
KPMG ehf
janúar 2023 - maí 2023
Lokaverkefni B.Sc. náms við HR í samstarfi við KPMG. Ég þróaði full-stack veflausn ásamt þremur samnemendum, hafði yfirumsjón með Scrum vinnulagi og verkefnastýringu og sinnti bæði hönnun og forritun fram- og bakenda.
- Scrum
- Next.js
- MSSQL
Erindreki
Bandalag íslenskra skáta
nóvember 2021 - nóvember 2022
Skipulagði viðburði, fræðslu og dagskrárgerð fyrir skátastarf á landsvísu. Ég starfaði einnig við vefumsjón, birgðahald og í skátabúðinni, auk þess sem ég þjálfaði starfsfólk og sinnti markaðssetningu á starfsemi bandalagsins.
- WordPress
- PHP
- JavaScript